Föstudaginn 18. október kl. 12:10-13:00 mun Aðalsteinn Örn Snæþórsson líffræðingur fjalla um lífsbaráttu rjúpna að sumarlagi. Aðalsteinn fylgdist með sendimerktum kvenfuglum á Norðausturlandi og kannaði varpárangur og lífslíkur þeirra. Niðurstöðurnar eru bornar saman við sambærilega athugun á Suðvesturlandi.
Að erindi loknu verður opnað fyrir spurningar.
Aðgangur ókeypis.
Súpa og brauð í boði Þekkingarnets Þingeyinga.