Fálkasetur Íslands í Ásbyrgi var stofnað þann 1. mars 2011. Fálkasetrið byggir á fjórum meginþáttum.
- Nýta einstakar aðstæður í Ásbyrgi og Jökulsárgljúfrum til að fræða almenning um íslenska fálkann, lifnaðarhætti hans og tengsl við aðrar tegundir og þá sérstaklega rjúpuna.
- Auka framboð á náttúrutengdri afþreyingu og koma til móts við vaxandi áhuga ferðamanna á fuglaskoðun.
- Halda nafni Theodórs Gunnlaugssonar á lofti og framlagi hans til aukinnar þekkingar almennings á náttúru Íslands.
- Stuðla að verndun íslenska fálkastofnsins með aukinni fræðslu og miðlun vísindalegrar þekkingar á tegundinni.